Matarklúbburinn Binninn
Dagsetning
23. febrúar 2012
Dagatal
febrúar - 2012
S M Þ M F F L
1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829
FyrriNæsti
15.01.2008 22:36:53 / binninn

Þá sjaldan maður lyftir sér upp.

Nohh, bara binnakvöld nk. laugardag.19th of jan. Þemað að þessu sinni verður italiano. Pöntuð verður pizza og skvett verður í sig bjór. Þeir sem vilja koma með ítölsk vín er það velkomið. Þá eru þeir sem vilja byrja kvöldið snemma einnig velkomið að horfa á handboltaleikinn sem hefst um 1700 leytið.

                                                        Kv. Gísli


» 2 hafa sagt sína skoðun

23.12.2007 20:56:50 / binninn

Annáll

 

Menn og konur nær og fjær til allra landa og handa. Þetta er fréttaritari Binnans sem skrifar úr bleiku húsi staðsett á N64ºW123º.

Áramótaannáll Binnans fyrir árið 2007 er eftirhljóðandi.

 

Andri

Það hlaut að koma að því. Eftir margra ára gagnrýni og endalausa sjálfsblekkingu þá gerðist það um mitt árið að Andri lagði gítarinn á hilluna, nærstöddum og fjarsýnum til mikillar gleði. Í júlí byrjun tók hann svo upp nýja dellu og byrjaði að hjóla út um allt ásamt því vinna í hjólabúð. Sú hjóla fluga sem hann í höfuðið fékk var ekki langlíf eftir að hann sá sig í spegli í þrönga hjólagallanum og byrjaði að fá óhóflegt magn af símanúmerum frá karlkyninu. Hann skipti fljótlega um föt, keypti sér íbúð og byrjaði að stunda golf með góðum mönnum.

Líklegur staður til að hitta Andra um áramótin er Golfskálinn á Álftanesi

 

Tommi

Í ársbyrjun var Rjómarassinn í miklu stuði enda búinn að vera mikið staddur erlendis og því vantviðlátinn ( ekki til staðar ) á Íslandi. Um páskana skellti hann sér í hóruferð með Mr. Helgason til útlanda, sem er ekki frá sögu færandi nema hvað að hann tók með sér sigurgest, sem síðar kom í ljós að var leynigestur. Amor heitir maðurinn og eftir eina uppáferðina þá skaut hann í hjartastað á Stuðmanninum og tókust með honum ástir á henni. Þau búa hamingjulega saman í bílskúr.

Liklegur staður til að hitta Tomma um áramótin er kaffistofan á Marel.

 

Gísli

Eftir að hafa gengið um óléttur af Konudd hugmyndinni í 9 mánuði þá skyndilega lét Kassagerðasambrotarmaðurinn úr Laugarnesinu verða af því og skellti sér sem skálkur, á skólabekk. Hann keypti sér bíl í ársbyrjun og stundaði menntaskólaböllinn af miklum móð. Eftir að hafa sængað hjá öllum flotanum hóf hann nám við Nuddaraskólann á Íslandi. Af honum er það helst að segja að hann hefur tekið ástfóstri við sveitta, óhóflega gildvaxna og olíborna líkama og nuddar sem aldrei fyrr. Það er engin líkamhluti til í heiminum sem Krem-mógúllinn hefur ekki lagt hönd sína á. Hann nuddar bæði lesblinda og feitt fólk sem eru góðar fréttir fyrir suma meðlimi Binnanns.

Liklegur staður til að hitta Gisla um ármótin er Body Shop búðin í Kringlunni.

 

Danni Frændi

Hingað til hefur Frændi okkar allra verið duglegur við sitt. Hann mætir til vinnu á degi hverjum án allra spurninga, gengur til verks og lýkur við sitt. Um mitt ár var tvísýnt um stund hvort hann mundi skila sér heim eftir djamm í miðborginni,  en betur fór en á horfðist og skilaði hann sér heim aðeins 10 mín eftir áætlaðan komutíma. Þegar líða tók á sumarið leystist úr læðingi kraftur, e-ð sem fréttaritarinn á erfitt með að átta sig á. Kraftur sem gerði Frænda okkar allra 8 mm hærri á lengdina. Þegar haustaði var hækkunin gegnin til baka og er skemmst frá því að segja Frændi okkar allar hefur nú náð sinni eðlilegu hæð.

Líklegur staður til að hitta Danna um áramótin er miðborgin eftir kl. 0400 um helgar.

 

Dagur

Hann setti nýtt íslandsmet í búferlaflutningum á þessu ári. Ótvíræður sigurvegari og maður sem neitar að gefast upp, ef hann vill flytja þá flytur hann. Honum var allstaðar tekið fagnandi enda vel að þessum titli kominn. Þegar Degi tók að halla seint á þessu ári, varð uppi fótur og fit og áttu menn fótum sínum fé að launa þegar lítill stúlkudrengur sem var í hans umsjá, tók sig saman í andlitinu og hrækti á nýju buxurnar hjá Sigurvegaranum. Þetta atvik leitti til þess að hann varð að segja af sér sem fóstra og snéri sér að karlamannalegri og fjölbreyttari lífstíl. Snemma í haust lét hann kýla sig, æfði eldamennskuna og starfar við símsvörun í dag. 

Líklegur staður til að hitta Dag um áramótin er VIP röðin á Hverfisbarnum.

 

Eldur

Þetta var fjölbreytt ár í lífi hávaxnasta meðlim Binnans. Í ársbyrjun var hann valin maður  tréverksins af bekkjarfélögum, titill sem gaf  honum það vald að sjá um sætisskipan á leikjum. Hann stjórnaði bekknum eins og hershöfðingi og það hefur enginn tærnar þar sem hann hefur bringuna. Um mitt ár varð algjör kúvending í lífi hans og furðuðu margir sig á því hvað hafði komið fyrir. Varúlfurinn sem leystist úr læðingi á laugardagskvöldum eftir kl. 0300, varð að vikja fyrir mjúka manninnum sem í honum bjó. Smátt og smátt leystist varúlfseðlið upp og að endingu var mjúki maðurinn algjörlega tekin við. Arkitektinn að þessu var ung Rún sem kennd er við Guð og geta stelpur borgarinnnar þakkað henni fyrir að kynlífsbrölti varúlfisns var nú senn lokið.

Líklegur staður til að hitta Eld um áramótin er á Njallanum.

 

Danél

Lágvaxnasti maður Binnans er án efa Mr. Helgason. Snemma á þessu ári færði hann lögheimilið sitt frá Hrísarteignum yfir í Stjörnublikk þar sem hann unar vel við sitt. Um páskana fékk hann flugu í höfuðið og varð að kalla á lækni til að skera úr um hvort það væri heilbrigð skynsemi sem úr kjaftinum á honum kæmi. Eftir marga daga rannsóknarvinnu varð niðurstaðan ótvíræð, nei var svarið. Hann hefur uppá sitt einsdæmi ákveðið að tefla refsiskák við dauðan og Slysó með Mótorkrosshjól sem sitt aðaltromp. Hingað til hefur okkar maður alltaf unnið og vonum við öll að svo verði áfram.

Líklegur staður til að hitta Danél um áramótin er Slysó

 

Birgir

Úr farsælum dúett á Laugaveginum fyrir ofan Devitos yfir í sóló artist með lögheimili í herbergi í Grafarvogi. En Adam var ekki lengi í paradís og fljótlega um mitt ár færði hann sig aftur yfir í dúett, nú með búsetu í Rimlahverfi. Á milli þess að klippa í sundur bláa, græna eða gula víra þá leikur hann sér í golfi, landanna á milli. Í júli mánuði fór að draga til tíðinda hjá vini okkar. Björgunarhringurinn sem umlykur hann allan var búinn að hopa um 1/14 út tommu. Haldinn var skyndifundur í hvelli og málið rætt til hlítar. Meðlimar ( þeir sem eru með limi ) Binnans héltu kosningu og var niðurstaðan ótvíræð og óafturkræf. Björgunarhringinn skal laga og láta ná sinni eðlilegu stærð aftur enda þekkt vörumerki út á við. Í september byrjun var hringurinn búin að ná sér aftur öllum til mikils léttis.

Líklegur staður til að hitta Birgir um áramótin er á nýársfagnaði Skaparans.com

  

Konráð

Baráttan við aukakílóin, stelpurnar og bankana. Í mars byrjun var hann kosin maður málanna af sambýlismanni sínum. Fögnuðurinn var gríðarlegur enda var mikið sungið, borðað dansað og ælt fram á rauða nótt. Daginn eftir var svo gengið frá samningum og hann settur í greiðslumat. Það mat var unnið út frá þeim forsendum að hann væri verðandi Flugumferðastjóri og launin miðuð út frá því. Skrifað var undir samninga í byrjun maí og íbúðin keypt. Í byrjun júní áttaði hann sig á því að starf Flugumferðastjórans gengur mikið út á að gefa út skipanir, taka ákvarðanir og tala, eitthvað sem hann kæri sig ekki um að gera.  Í kjölfarið var tekin 360º stefnubreyting og málin skoðuð uppá nýtt. Kölluð var til blaðakona af Fréttablaðinu og hann spurður spjörunum úr. Á Adamsklæðum einum fata varð til sú hugmynd að fara á fund bankastjóra óg biðja um há laun fyrir að svara í síma. Síðla sumars gekk sú hugmynd í gegn og situr han sáttur við sitt.

Líklegur staður til að hitta Konráð um áramótin er á Njallanum.

 

Þetta er Fréttaritari Binnans sem óskar meðlimum öllum gleðilega hátið.

          

» 2 hafa sagt sína skoðun

09.12.2007 22:21:42 / binninn

Jólagjöfin í ár !

 Nú eru margir farnir að huga að jólagjafakaupum og eflaust eru margir að velta fyrir sér hvað þeir eigi að gefa. Hvernig væri að gefa gjafabréf í nudd þetta árið ! Fyrir litlar 2000 kr. er hægt að fá slíkt bréf hjá mér. Hægt er að velja á milli nuddaðferða.   Klassískt nudd. Svæðanudd. Þar eru fæturnir nuddaðir, frá tám að ökkla.   Shiatzu. Þrýstipunktanudd. Það er framkvæmanlegt gegnum klæðnað ef að því er skipta.                                     Kv. Gísli  

 


» 4 hafa sagt sína skoðun

27.11.2007 21:50:03 / binninn

Jólabinni !

 Er stemmari fyrir jólagleði binnans í desembeermánuði !

» 4 hafa sagt sína skoðun

20.11.2007 19:57:43 / binninn

Já sæll.

Hjálmar á nasa laugardaginn 24. nóv. 1200 kall inn. Ég mæti.

» 0 hafa sagt sína skoðun

28.10.2007 21:54:36 / binninn

Nú er ekkert sem stoppar þá.

Chelsea vann þriðja sigur sinn í ensku úrvalsdeildinni með því að mala Manchester City 6-0. Leikurinn var eign heimamanna sem höfðu yfir 2-0 með mörkum frá Michael Essien og Didier Drogba. Drogba bætti við öðru marki sínu í síðari hálfleiknum og þar náðu þeir Joe Cole, Salomon Kalou og Andriy Shevchenko einnig að komast á blað.

» 1 hafa sagt sína skoðun

15.10.2007 14:37:43 / binninn

Nudd

Heilsunudd er yfirgripsmikið og innan þess er að finna aðferðir eins og klassískt nudd, svæðanudd, sogæðanudd og fl. Undanfarnar vikur hafa nemendur Nuddskóla Íslands tileinkað sér klassíska nuddformið.    Klassískt vöðvanudd er samheiti á ýmsum formum vöðvanudds, sem m.a. miða að því að mýkja vöðva, ná fram slökun og örva blóðrás; það er e.t.v. betur þekkt undir heitinu sænskt vöðvanudd. Þessa stundina eru nuddnemar að æfa sig af fullum krafti, því á næstu vikum fer í gang hið vinnsæla nuddklinik í Reykjavík. Þ.e. nemanudd sem fram fer í nuddskólanum. Sorry en mig langaði til að deila þessu með ykkur fallega fólkinu og ef þið eða einhver sem þið þekkið langar að koma í æfinganudd hjá mér þá er það vel þegið. Bara hafa samband og við komum ykkur á bekkinn.                           Kv. Nuddnemi Binnans  

» 12 hafa sagt sína skoðun

19.09.2007 11:07:44 / binninn

Árshátíðarferð 2007-2008????

Jæja er þá ekki orðið tímabært að fara að ræða um árshátíðarferð binnans. Þær hafa verið mjög vel sótar síðustu ár og vona ég að jafn margir sjái sér fært um að mæta á þessu ári. En ég vil bara fá umræðu um hvert ferðinni skal heitið, hvenær og annað sem henni tengist ??? Annars hefur fréttaritari binnans heyrt að ferðin til Barcelona í fyrra hafi farið fram úr væntingum þeirra fjölmörgu meðlima binnans sem voru með í för. Vonum að svo verði aftur í ár.

 

Fréttaritari binnans á höfuðborgarsvæðinu.


» 7 hafa sagt sína skoðun

18.09.2007 12:22:52 / binninn

Skemmtilegar umræður !

Þingið í Singapore vill afnema bann við munn- og endaþarmsmökum. Þó ekki fyrir samkynhneigða. Hingaðtil hefur verið blátt bann við slíkum leikjum jafnvel innan veggja heimilisins. Hvort sem gagnkynhneigð eða samkynhneigð pör hafa átt í hlut.

Fyrir þinginu liggur nú frumvarp um að breyta þessu og ýmsu öðru í sambandi við kynlífsathafnir í landinu. Samneyti samkynhneigðra verður áfram bannað.


» 0 hafa sagt sína skoðun

13.09.2007 13:48:19 / binninn

Þrjár mýs voru á bar og voru að metast á um hver þeirra væri mesti töffarinn.

Fyrsta músin skellti í sig einu vænu brennivínsskoti og sagði svo:
'Strákar, þessar músagildrur eru hlægilegar. Í hvert sinn sem ég kem að einni slíkri, þá er nú lítið mál fyrir mig að kippa ostinum af.
Svo tek ég nokkrar léttar bekkpessuæfingar með gildrunni á eftir!'
Önnur músin skellti í sig tveimur og sagði svo:
'Músagildrur? Voðalega eru gamaldags. Þessar hátíðnihljóðbylgjur sem mennirnir eru að nota á okkur mýsnar núna hljóma eins og ljúfir tónar í eyrum mínum!'
Þriðja músin þambaði restina úr flöskunni, stóð upp og sagði: 'Jæja, ég ætla heim að ríða kettinum!'

» 0 hafa sagt sína skoðun

31.08.2007 13:09:41 / binninn

hahhaha

þetta er víst tekið af Barnalandi.is og þetta er bara fyndið 0


'Þetta byrjar þannig að kona af barnalandi biður um hjálp við að skrifa 'virðingarfyllst' á ensku, hún er semsagt að skrifa bréf.


'hvernig segir maður
kær kveðja ...... á ensku sorrý er ekki klár í henni og er að senda út til uk vegna gallaða dótsins '


Hún fær svör og þakkar fyrir.


'okei takk æðislega
ég er geggjað slöpp í ensku sérstaklega að skrifa hana getiði sagt mér án þess að drulla yfir mig hvort að það sé hægt að skilja eitthvað af þessu bréfi hehe


Hello
i am from Iceland and I don not speak very good English but I am gun a tray  

I by a toy in Iceland from fisher price ,,little people,, and dora explorer and this toy are maid in China 2002-2007.
One Dora explorer vas bay in Spain and made 2002 (the small one) and the big one I think in Iceland but I am not sure made 2003.
Are something wrong this toy or?????
What can I do??
Can I talk to some body in Iceland so I can anther stand this better????


I hope you can anther stand what I am writing  

And thank you


Respectfully . '



Einum notenda finnst þetta fyndið eins og öruglega okkur öllum,  og þíðir þetta yfir á íslensku! ..  



'Halló,
Ég er frá Íslandi og ég er mafíuforingi sem talar ekki mjög góða ensku, en ég er byssa á bakka.
Ég er hjá leikfangi á Íslandi frá Fisher Price, litla fólk og Dóra landkönnuður og þetta leikfang er þjónustustúlka í Kína á árunum 2002-2007.
Ein Dóra landkönnuður var strönd á Spáni og náði 2002 (sú litla) og um þá stóru hugsa ég á Íslandi en er ekki viss um að hafi náð 2003.
Eru eitthvað að þessu leikfangi eða?????
Get ég talað við eitthvað lík á Íslandi svo ég geti anther staðið þetta betur?????


Ég vona að þú getir anther staðið það sem ég skrifa

» 3 hafa sagt sína skoðun

30.08.2007 22:54:40 / binninn

Toppslagur

Is there anyone of u cunts að fara á leikinn Þróttur-Grindavík á laugard. kl. 14:00  ! 

» 1 hafa sagt sína skoðun

19.07.2007 00:20:32 / binninn

Binninn hjá kappanum.

Binninn verður haldinn hjá mér (Tomma) laugardaginn 21 júlí kl. 20:00. Það verður sama týpa og hefur verið 1500 kappar á kjaft og ég sé um eldamenskuna. Eina afsökuninn sem er tekin gild er ef að menn séu ekki staðettir á höfuðborgarsvæðinu eða að vinna punktur. Ég veit að virkir meðlimir munu láta sjá sig og ég vonast til að sjá hina líka.

 

Kv. Tommi


» 5 hafa sagt sína skoðun

01.07.2007 14:26:11 / binninn

BINNINN Á EM

Fram hafa komið hugmyndir um að Binninn ætli að skella sér á EM í handbolta sem  haldið verður í janúar 2008 í Noregi. Hérna eru upplýsingar um mótið sem ég hvet ykkur til að tjá ykkur um.

 

-Leikplan á EM

EHF er búið að gefa út í hvaða röð liðin mætast í riðlunum á EM í Noregi og byrjar Ísland á að mæta Svíum, þá Slóvökum og loks Frökkum. Leikið verður í Þrándheimi.

Dagur

A riðill

B riðill

C riðill

D riðill

17.1.2008

CRO v POL

DEN v NOR 

ESP v HUN 

FRA v SVK 

SLO v CZE 

RUS v MNE 

GER v BLR 

ISL v SWE 

18.1.2008

CZE v CRO 

MNE v DEN 

Hvíldardagur

POL v SLO 

NOR v RUS 

l19.1.2008

Hvíldardagur

BLR v ESP 

SWE v FRA 

HUN v GER 

SVK v ISL 

20.1.2008

POL v CZE

NOR v MNE

HUN v BLR

SVK v SWE

CRO v SLO

DEN v RUS

ESP v GER

FRA v ISL

 

 

 

-Frá Kef til Osló

Ef við bíðum ekki lengi með að panta þá gætum við fengið flug til Osló og til baka með sköttum á innan við 30 þús með Icelandair.

 

Með Icelandair:

  • Brottför: fimmtudagur, janúar 17
  • Til baka: miðvikudagur, janúar 30
  •  
  • =25.870 ISK (á farþega með sköttum)

Inn á Icelandexpress.is er ekki hægt að fá upplýsingar um ferðir til Osló í janúar

 

-Frá Osló til Þrándheims

Eins og gefur að skilja þyrftum við að koma okkur frá Osló til Þrándheims. Og eru þá einkum þrjár leiðir í boði: Nema nottla að Diddi skutli okkur á einkaflugvélinni.

 

Með lest:

Lestin tekur 8 tíma.  www.nsb.no

 

Með flugi:

Flugið tekur 50 mín. frá flugvellinum í Osló sem heitir Gardermoen: www.osl.no.

           

Inn á SAS kostar ca 1000 norskar kr. að fljúga frá Osló til Þrándheims og til baka.

Samkvæmt Landsbankanum- Banka allra Landsmanna er seðlagengið á norsku krónunni: 10,6 

 

Með bílaleigubíl: 

Keyrt eftir vegi: E6 (ef það segir ykkur eitthvað) í 7 -8  tíma. Spurning um road trip ? En það er kannski ekkert skemmtilegt að keyra um Noreg í skítakulda í janúar.

 

Inn á heimasíður keppninnar er mælt með að farið er með flugi.

 

 

-Keppnishöllin í Þrándheimi

Keppnishöllin í Þrándheimi er staðsett í 15 mín. göngufjarlægð frá miðborg Þrándheims. Hún tekur 4200 einstaklinga í sæti

 

-Eftir Riðlakeppnina.
Eins og sjá má hér að neðan fer riðlakeppnin fram í fjórum borgum. Íslendingar keppa í
 Þrándheimi. Ef þeir komast upp úr riðlinum fara þeir í milliriðil sem verður spilaður annað hvort í Stavangri eða Þrándheimi.  Þrjú lið af fjórum komast upp úr hverjum riðli í milliriðil. Ef Íslendingar lenda í fyrsta eða öðru sæti í milliriðli spila þeir til undanúrslita og jafnvel til úrslita sem fram fara í Lillehammer.

Riðlakeppnin:

Milliriðlar:

Undanúrslit, úrslit og leikir um sæti:

Bergen
Drammen
Stavanger
Trondheim

Stavanger
Trondheim

Lillehammer


» 5 hafa sagt sína skoðun

23.06.2007 16:41:15 / binninn

matarklúbbur í aften

Þetta var maður að heyra núna 3 tímum fyrir mætingu.  Ég vona að sem flestir láti sjá sig heima hjá nýjasta meðlimi binnans á hrísateignum.  Það hefur en ekkii náðst í Bigga, Eld og Didda. Ef menn hitta þá. eru menn vinsamlegast beðnir um að láta þá vita....

Fréttaritari binnans í reykjavík


» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 13